Við smíðum hugbúnað.

Vitræna er hugbúnaðarfyrirtæki í Reykjavík. Við bætum vefsíður, smíðum sérsniðinn hugbúnað og prófum kerfi í leit að veikleikum.

Hvað við gerum fyrir þig

Öll þjónusta →

Vefsíður

Er vefurinn hægur, úreltur eða ekki í lagi í símanum? Við bætum vefinn sem þú ert með, eða smíðum nýjan þegar það á við.

Hraði · Símar · Leitarvélar · Aðgengi · Hýsing

Nánar um vefsíður →

Hugbúnaður

Innri kerfi, forrit fyrir viðskiptavini, skjáborðsforrit og tengingar milli kerfa sem tala ekki saman.

Vefforrit · Skjáborðsforrit · Samþættingar · Sjálfvirkni

Nánar um hugbúnað →

Öryggi

Við prófum kerfin þín eins og árásaraðili myndi gera og skilum skýrri skýrslu um hvað þarf að laga.

Öryggisúttekt · Árásarprófanir · Red teaming

Nánar um öryggi →

Svona vinnum við

Milliliðalaust

Þú talar beint við þann sem vinnur verkið, frá fyrsta samtali til afhendingar.

Skriflega

Skrifleg verklýsing áður en nokkuð hefst: hvað við gerum, hvað það kostar og gróflega hve langan tíma það tekur.

Fyrir opnum tjöldum

Þú sérð vinnuna jafnóðum. Þegar henni lýkur eru kóðinn og skýrslan þín eign.

Ertu með eitthvað í huga?

Segðu okkur hvað þig vantar, þótt hugmyndin sé enn á frumstigi. Við svörum öllum, yfirleitt innan fárra daga.

hakon@vitraena.is →